Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld þar sem Fjölnir, Þór Þorlákshöfn, Snæfell og Grindavík unnu örugga sigra. Grindavík trónir því á toppi deildarinnar með 28 stig.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
09 02 2012 | 21:17
Úrslit kvöldsins: Öruggt hjá Grindavík, Þór og Snæfell
Þór Þorlákshöfn 84-66 Njarðvík
Blago Janev var stigahæstur hjá Þór með 23 stig og 9 fráköst, Darrin Govens bætti við 22 stigum, 7 fráköstum og 6 stoðsendingum. Hjá Njarðvík var Travis Holmes með 16 stig og Cameron Echols 13 en Páll Kristinsson var þó þeirra besti maður í kvöld að öðrum ólöstuðum með 9 stig og 6 fráköst.
Valur 73-83 Fjölnir
Alexander Dungal gerði 18 stig og tók 6 fráköst í liði Vals og Hlynur Logi Víkingsson bætti við 17 stigum og 15 fráköstum. Hjá Fjölni var Arnþór Guðmundsson með 27 stig og 6 fráköst og Calvin O´Neal bætti við 21 stigi.
Tindastóll 96-105 Grindavík
Giordan Watson fór hamförum í liði Grindavíkur með 40 stig og 7 stoðsendingar. Þá bætti J´Nathan Bullock við 22 stigum og 7 fráköstum. Hjá Tindastól var Curtis Allen með 23 stig og Maurice miller gerði 17 stig og gaf 8 stoðsendingar, þá var Helgi Rafn Viggósson með myndarlega tvennu, 16 stig og 10 fráköst.
Snæfell 97-74 ÍR
Quincy Hankins-Cole hnoðaði í tvennu, 19 stig og 16 fráköst í liði Snæfells og þeir Marquis Hall og Jón Ólafur Jónsson bættu báðir við 18 stigum. Hjá ÍR var Hjalti Friðriksson með 18 stig og 6 fráköst og Robert Jarvis gerði 13 stig.
Nánar síðar…
Mynd/ tomasz@karfan.is - Matthew Hairston átti nokkrar svakalegar troðslur í Icelandic Glacial Höllinni í kvöld.
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila