Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Philadelphia hafði betur gegn LA Lakers, LA Clippers gerðu góða ferð til Orlando og Jeremy Lin fór á kostum í liði New York sem skellti Utah Jazz.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
07 02 2012 | 09:29
Jeremy Lin stal senunni með New York í nótt
Philadelphia 95-90 LA Lakers
Louis Williams kom grimmur af bekknum hjá 76ers með 24 stig og 4 stoðsendingar en hjá Lakers var Kobe Bryant með 28 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst og Andrew Bynum bætti við 20 stigum og 20 fráköstum.
Orlando 102-107 LA Clippers
Chris Paul leiddi Clippers með 29 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst. Hjá Orlando var Dwight Howard sem fyrr atkvæðamestur með 33 stig og 14 fráköst.
New York 99-88 Utah Jazz
Útskriftarneminn frá Harvard, Jeremy Lin, stal senuninni í liði New York í nótt með 28 stig og 8 stoðsendingar. Þetta var í fyrsta sinn sem Lin er í byrjunarliði Knicks. Al Jefferson var svo stigahæstur í liði Utah með 22 stig og 4 fráköst. Carmelo Anthony lék í rétt rúmar fimm mínútur í leiknum en hann meiddist og varð að haltra af velli.
Önnur úrslit næturinnar:
Washington 111-108 Toronto
New Jersey 87-108 Chicago
Atlanta 90-99 Phoenix
Memphis 84-89 San Antonio
New Orleans 92-100 Sacramento
Denver 90-99 Houston
Portland 107-111 Oklahoma
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila