Í kvöld fara fram undanúrslit karla í Poweradebikarkeppninni þegar Keflavík tekur á móti KFÍ í Toyota-höllinni og Tindastóll fær KR í heimsókn í Síkið í Skagafirði. Báðir leikirnir hefjast kl. 19:15. Fastlega má gera ráð fyrir að Tindastóll TV sýni frá sínum leik og þá hefur Karfan.is heimildir fyrir því að KFÍ TV ætli að reyna útsendingu frá Reykjanesbæ.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
05 02 2012 | 10:02
Undanúrslit karla fara fram í kvöld: Leikið í Keflavík og í Skagafirði
KR á titil að verja og hafa einnig unnið alla átta bikarleiki sína undir stjórn Hrafns Kristjánssonar og með sigri í kvöld kemst KR í Laugardalshöllina í þriðja sinn á fjórum árum. Einnig er þetta í fyrsta sinn sem undanúrslitaleikur í bikarkeppninni fer fram í Skagafirði í karlaflokki og því má fastlega gera ráð fyrir því að Skagfirðingar troðfylli Síkið. Hafi Stólarnir sigur í kvöld komast þeir í Laugardalshöll í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Í hinni rimmunni eru Keflavík og KFÍ bæði lið sem komist hafa í Höllina áður og þegar KFÍ fór í sitt fyrsta og eina skipti troðfylltu þeir þjóðarleikvanginn. Keflavík hefur tapað síðustu tveimur undanúrslitaleikjum sínum og léku síðast til bikarúrslita fyrir sex árum en KFÍ var í Höllinni árið 1998.
Undanúrslit karla í kvöld, kl. 19:15
Tindastóll-KR
Keflavík-KFÍ
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila