Fjögur stig súginn hjá Haukum í síðustu tveimur leikjum eftir spennuslagi, fyrst gegn Njarðvík í síðustu umferð og í kvöld gegn Stjörnunni þegar Hafnfirðingar máttu sætta sig við 81-74 ósigur. Með sigrinum hélt Stjarnan 2. sætinu í deildinni með 20 stig en Haukar eru í fallsæti með 4 stig.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
03 02 2012 | 00:01
Myndasafn: Stjarnan marði Hauka í Ásgarði
Garðbæingar voru fjarri sínu besta í fyrri hálfleik og Teitur Örlygsson lét sína menn heyra það enda Haukar að hrifsa urmul af sóknarfráköstum og leiddu 41-42 í hálfleik.
Stjarnan náði forystu í leiknum í fyrsta sinn með fyrstu körfu síðari hálfleiks. Haukar urðu fyrir blóðtöku þegar Helgi Einarsson fór af velli með fimm villur en Örn Sigurðarson kom sterkur inn í kvöld og setti 18 stig fyrir Hauka í kvöld.
Haukar komust í 55-61 og síðar 55-66 en Garðbæingar fóru að færast nærri. Í stöðunni 60-69 tókst Haukum ekki að skora í heilar fjórar mínútur, allt í baklás og Garðbæingar kláruðu dæmið 81-74.
Heildarskor
Stjarnan: Renato Lindmets 25/12 fráköst, Justin Shouse 21/4 fráköst/9 stoðsendingar, Keith Cothran 17, Fannar Freyr Helgason 7/10 fráköst, Marvin Valdimarsson 5/5 fráköst/4 varin skot, Guðjón Lárusson 4, Sigurjón Örn Lárusson 2, Magnús Bjarki Guðmundsson 0, Aron Kárason 0, Tómas Þórður Hilmarsson 0, Jovan Zdravevski 0/7 fráköst, Dagur Kár Jónsson 0.
Haukar: Hayward Fain 19/5 fráköst, Örn Sigurðarson 18, Christopher Smith 11/12 fráköst/4 varin skot, Haukur Óskarsson 9, Emil Barja 4/5 fráköst, Helgi Björn Einarsson 4, Alik Joseph-Pauline 4/6 fráköst, Steinar Aronsson 3, Davíð Páll Hermannsson 2/4 fráköst, Óskar Ingi Magnússon 0, Guðmundur Kári Sævarsson 0, Marel Örn Guðlaugsson 0.
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila