Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice gerðu í kvöld góða ferð til Tékklands þegar síðasta umferðin í C-riðili meistaradeildar kvenna fór fram. Good Angels heimsóttu þá Frisco Brno og höfðu 57-79 sigur í leiknum þar sem Helena gerði 12 stig á 20 mínútum.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
01 02 2012 | 22:24
Öruggt hjá Good Angels í Tékklandi – komnar áfram í meistaradeildinni
Helena setti niður 5 af 9 í teignum, brenndi af einu þriggja stiga skoti og skoraði úr tveimur af þremur vítum. Þá var Helena einnig með 7 fráköst, 3 stolna bolta og 1 stoðsendingu.
Með sigrinum hafnaði Good Angels í 3. sæti í C-riðli en það eru fimm lið sem komast upp úr riðlinum og inn í útsláttarkeppni sem telur fjórtán lið.
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila