Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt en það er aðeins einn hlutur sem kemst að hjá fólki og það er troðslan hans Blake Griffin! Mögulega er troðsla tímabilsins dottin í hús en fórnarlambið var Kendrik Perkins.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
31 01 2012 | 10:11
Níu leikir – ein skrímslatroðsla: Griffin skellti Perkins á plakat
LA Clippers tóku á móti Oklahoma City Thunder í Staples Center og höfðu betur 112-100. Blake Griffin átti mögulega tilþrif tímabilsins þegar hann tróð með látum yfir Kendrik Perkins.
Chris Paul var stigahæstur í liði Clippers með myndarlega tvennu, 26 stig og 14 stoðsendingar og þá var Blake Griffin með 22 stig og 7 fráköst. Hjá Oklahoma var Kevin Durant með 36 stig og 13 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar
Philadelphia 74-69 Orlando
Washington 88-98 Chicago
Miami 109-95 New Orleans
Milwaukee 103-82 Detroit
Memphis 73-83 San Antonio
Houston 108-120 Minnesota
Utah 93-89 Portland
Phoenix 99-122 Dallas
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila