Keflvíkingar gerðu góða ferð norður í Skagafjörð í þrettándu umferð Iceland Express deildar karla og skelltu heitum Stólum 72-91 þar sem Magnús Þór Gunnarsson fór fyrir Keflavíkurliðinu með 25 stig og 10 fráköst!
NÝJUSTU ÚRSLIT...
31 01 2012 | 15:00
Gatorade-leikmaður þrettándu umferðar: Magnús Þór Gunnarsson
,,Þetta gekk vel hjá okkur og Tindastóll átti aldrei séns frá fyrstu mínútu,“ sagði Magnús í samtali við Karfan.is. En var ekkert erfitt að innleiða nýjan mann í þetta sem kom beint í leik úr flugvélinni?
,,Hann er í formi og leit vel út á æfingu í gær en við erum bara mjög ánægðir og stoltir af Val Orra sem lítur mjög vel út um þessar mundir. Þá styttist í að Arnar Freyr fari að koma á æfingar en hann er í dag í skoðun hjá lækni eftir aðgerðina,“ sagði Magnús en meiðsli hafa verið að hrjá Arnar eins og kunnugt er sem hann hefur nú farið í uppskurð við.
Magnús Þór Gunnarsson er ekki að ósekju valinn Gatorade-leikmaður þrettándu umferðar með 25 stig og 10 fráköst í Síkinu gegn sjóðheitum Tindastólsmönnum sem nú hafa verið snöggkældir.
Fleiri voru tilkallaðir en í kosningu fengu þeir Jón Ólafur Jónsson og Cameron Echols einnig nokkur atkvæði ljósmyndara/fréttaritara Karfan.is en Magnús vann þó með miklum yfirburðum.
Mynd/ nonni@karfan.is – Magnús Þór vildi ekki heyra á annað minnst en að hafa Pétur Guðmundsson með sér á myndinni enda ekki á hverjum degi sem skotbakvörðurinn knái rífur niður 10 fráköst í leik!
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila