Viðureign KFÍ og Ármanns átti að fara fram í gær í 1. deild karla á Ísafirði en Ármenningar mættu ekki til leiks og var toppliði KFÍ því dæmdur 20-0 sigur. Samkvæmt mótanefnd KKÍ mun hafa verið fært vestur en Ármenningar hugðust aka til leiksins við KFÍ.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
30 01 2012 | 11:41
Tvö stig en enginn leikur: KFÍ dæmdur sigur gegn Ármenningum
Mótanefnd KKÍ segir um málið:
Samkvæmt forsvarsmanni Ármanns treystu þeir ekki færðinni, en þeir ætluðu að keyra, og því fóru þeir ekki.
Það var mat mótanefndar eftir að hafa rætt við lögreglu, Vegagerðina og Veðurstofuna að færð og aðstæður væru góðar og því var leiknum ekki frestað.
Ármann tapar leiknum 20-0 fyrir að hafa ekki mætt.
KFÍ hefur því nú 26 stig á toppi deildarinnar og fátt ef nokkuð virðst ætla að koma í veg fyrir að liðið vinni sér inn sæti í úrvalsdeild á næstu leiktíð en næsta lið á eftir þeim, Skallagrímur, hefur 18 stig og á tvo leiki til góða. Ármenningar sitja á botni deildarinnar með 4 stig.
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila