Nú þegar nær dregur Óskarnum vestan hafs er ekki úr vegi að við körfuboltamenn og unnendur efnum til okkar eigin keppni. Karfan TV fer nú að stað með keppni um Körfuboltamyndband ársins. Vegleg verðlaun eru í boði en það eru æfingatreyjur og stuttbuxur frá Jóni Arnóri Stefánssyni frá Granada.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
30 01 2012 | 22:40
Leikur: Körfuboltamyndband ársins
Þið hafið algerlega frjálsar hendur hvað varðar videóið fyrir utan nokkrar nokkuð einfaldar reglur.
- Vídeóið þarf að vera ferskt (ekki gamalt efni klippt niður)
- "Fællinn" verður að skilast inn í MPEG-4 eða FLV formi
-"Fællinn" má ekki vera stærri en 100 mb
- Videóið á ekki að vera lengra en 1 mínúta.
- Má vera auglýsing, stuttmynd, leikið efni, troðslur eða hvað sem er.
-SKILAFRESTUR ER 1. MARS 2012
Dæmt verður eftir frumleika og ekki skemmir að hafa góðan "húmor" í myndbandinu. Dómarar í keppninni eru starfsmenn Karfan.is og svo annarsvegar fagmaður í sjónvarpsbransanum.
1. Verðlaun eru sem fyrr segir (sjá mynd) Æfingatreyjur og stuttbuxur frá Jón Arnór Stefánssyni. Við erum að tala um sett sem kappinn æfði sjálfur í (en þó ný þvegið allt)
2.-3. verðlaun: Kippa af Gatorade
Nú er það að leggja hausinn í bleyti og koma með eitthvað alveg ótrúlega skemmtilegt efni og senda á okkur á emailið leikur@karfan.is
Góða skemmtun.
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila