Vegna fréttar á Karfan.is í gær (29. janúar 2012) að Igor Tratnik hafi fengið sig lausan frá Val, þá vill stjórn körfuknattleiksdeildar Vals koma því á framfæri að þessi frétt er ekki rétt. Igor er samningsbundinn Val og ekki er fyrirhugað að breyta því.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
30 01 2012 | 09:52
Aðsent: Igor Tratnik er samningsbundinn Val
Það er engu líkara en að grínið á þorrablóti Skagfirðinga hafi lekið í staðarfréttablaðið Feyki. Ugglaust er blaðamaður Feykis (Palli) að gantast með nýjan þjálfara Stólanna með þessum hætti. Blaðamaðurinn þekkir augljóslega þjálfaraferil Bárðar og hve oft hann hefur skipt um erlenda leikmenn í gegnum tíðina. Þannig gerum við ráð fyrir að þetta spaug hafi hitt vel í mark í gleðinni. Þar sem við Valsmenn þekkjum vel ríka söguhefð og gott skopskyn Skagfirðinga þá tökum við þessu ekki alvarlega en viljum samt koma leiðréttingu á framfæri af þessu tilefni. Þá þekkjum við einnig hve sómakærir og réttsýnir Skagfirðingar eru og það er ekki þeirra siður að hafa samband við samningsbundna leikmenn annarra liða né með nokkrum hætti hrófla við samningsbundnum leikmönnum á miðju tímabili.
Slíkt er mjög ódrengilegt og öllum þeim sem slíkt gera til skammar. Næg er vitleysan með komur og brottfarir erlendra leikmanna í deildinni í vetur að lið fari ekki í ofanálag að hnoðast í leikmönnum annarra liða.
Við hvetjum stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls að leiðrétta þennan leiðinlega misskilning hjá Feyki og óskum þeim góðs gengis í átökum vetrarins.
Með virðingu, Stjórn Körfuknattleiksdeildar Vals
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila