Miðherjinn Sigurður Þórarinsson er ökklabrotinn og leikur ekki meira með Skallagrím í 1. deild karla þetta tímabilið. Sigurður var að leika með unglingaflokki á dögunum þegar hann rann til í Seljaskóla með þeim afleiðingum að hann ökklabrotnaði. Pálmi Þór Sævarsson þjálfari Skallagríms staðfesti þessi tíðindi við Karfan.is.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
27 01 2012 | 17:00
Sigurður ökklabrotinn – ekki meira með Skallagrím þetta tímabilið
Pálmi sagði einnig að Skallarnir gætu þurft að líta í kringum sig í s.b.v. liðsauka þar sem Hörður Helgi Hreiðarsson er einnig enn meiddur og Skallarnir hafi því orðið fyrir talsverðri blóðtöku í kringum körfuna. Loku er því ekki fyrir það skotið að Borgnesingar bæti við sig erlendum leikmanni til að fylla skarð Sigurðar og Harðar.
Mynd/ Úr safni: Sigurður Þórarinsson í leik með sameiginlegu liði Snæfells og Skallagríms í bikarkeppni yngri flokka.
nonni@karfan.is
- Bikarúrslitahelgi yngri flokka tilbúin
- Meiðsli í herbúðum Njarðvíkinga - Echols frá síðustu vikuna
- Newberry á sigurbraut eftir fjóra tapleiki þar á undan
- NBA Ísland: Hlaðvarp með Baldri Beck
- Leikir dagsins: Heil umferð í úrvalsdeild kvenna í kvöld
- 34 titlar á tuttugu árum
- Portland valtaði yfir Spurs og stöðvaði sigurgönguna
- Njarðvík í bikarúrslit í drengjaflokki
- Helena og Góðu Englarnir í vanda
- Rodney Alexander til liðs við ÍR fyrir lokaátökin
Senda frétt
Prenta
Deila