Tveir reynsluboltar snéru aftur inn á parketið í gærkvöldi, þeir Marel Örn Guðlaugsson í Haukum og Páll Kristinsson í Njarðvík. Með þátttöku sinni í leiknum í gærkvöldi komst Marel í 413 leiki og bætir því ennfrekar sitt eigið met sem leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Páll Kristinsson nær inn á topp tíu listann og er í 7. sæti með 355 leiki.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
27 01 2012 | 09:42
Marel kominn í 413 leiki
Páll og Marel komust báðir vel frá sínu í gærkvöldi þegar Njarðvík lagði Hauka í Schenkerhöllinni. Marel setti tvo risavaxna þrista í fjórða leikhluta en það dugði ekki til að kveikja í Haukum þar sem Njarðvík vann lokasprettinn 14-2 og leikinn 75-85.
Næsti ,,virki“ leikmaður í úrvalsdeildinni á eftir Marel er Eiríkur Öndunarson leikmaður ÍR í 6. sæti með 363 leiki.
Tíu leikjahæstu menn úrvalsdeildarinnar frá upphafi:
Marel Guðlaugsson - 413
Guðjón Skúlason - 409
Teitur Örlygsson - 405
Valur Ingimundarson - 400
Gunnar Einarsson - 375
Eiríkur Önundarson - 363
Páll Kristinsson - 355
Guðmundur Bragason - 348
Sverrir þór Sverrisson - 343
Páll Axel Vilbergsson - 340
(Þeir sem enn leika í úrvalsdeild eru feitletraðir)
(Guðmundur Bragason er enn að spila en ekki í úrvalsdeild)
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila