Jovan Zdravevski verður í búning með Stjörnunni á eftir þegar liðið heimsækir Val í Vodafonehöllina í Iceland Express deild karla. Þetta verður þá í fyrsta skipti sem Jovan spilar með Stjörnunni síðan liðið mætti KR í októbermánuði síðastliðnum en Jovan hefur verið að glíma við erfið meiðsli.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
27 01 2012 | 18:00
Jovan í búning gegn Val - Garrison farinn
Samkvæmt heimildum Karfan.is hefur Jovan æft undanfarna viku með Stjörnunni og meiðslin hafa ekki angrað hann og því mikið gleðiefni fyrir Garðbæinga ef Jovan kemst sem fyrst á skrið.
Þá verður Garrison Johnson ekki með Valsmönnum í kvöld þar sem hann hefur yfirgefið félagið að eigin ósk en þetta staðfesti Ágúst Björgvinsson þjálfari Vals við Karfan.is í dag.
nonni@karfan.is
- Bikarúrslitahelgi yngri flokka tilbúin
- Meiðsli í herbúðum Njarðvíkinga - Echols frá síðustu vikuna
- Newberry á sigurbraut eftir fjóra tapleiki þar á undan
- NBA Ísland: Hlaðvarp með Baldri Beck
- Leikir dagsins: Heil umferð í úrvalsdeild kvenna í kvöld
- 34 titlar á tuttugu árum
- Portland valtaði yfir Spurs og stöðvaði sigurgönguna
- Njarðvík í bikarúrslit í drengjaflokki
- Helena og Góðu Englarnir í vanda
- Rodney Alexander til liðs við ÍR fyrir lokaátökin
Senda frétt
Prenta
Deila