Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Boston lagði Orlando á útivelli og LA Clippers komust á beinu brautina á nýjan leik með sigri gegn Memphis Grizzlies í Staples Center.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
27 01 2012 | 09:24
Clippers aftur á beinu brautina með sigri gegn Memphis
Orlando 83-91 Boston
Paul Pierce fór fyrir Boston í leiknum með 24 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst og þá bætti Kevin Garnett við 12 stigum og 10 fráköstum. Dwight Howard fór fyrir Orlando með 16 stig og 16 fráköst.
LA Clippers 98-91 Memphis
Blake Griffin var að daðra við þrennuna en hann gerði 20 stig í liði Clippers og bætti við 9 fráköstum og 8 stoðsendingum. Þá var Chris Paul heldur ekki fjarri þrennunni með 18 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Memphis var Rudy Gay með 24 stig og 7 fráköst.
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila