Ólafur Rafnsson, forseti Fiba Europe, afhenti í gærkvöld Spánverjum verðlaun sín er þeir urðu Evrópumeistarar. Ólafur afhenti leikmönnum Spánar gullpeninga sína ásamt Dalia Grybauska, forseta Litháens, og Felipe, krónprins Spánar. www.kki.is greinir frá.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
19 09 2011 | 07:00
Ólafur Rafnsson afhenti Spánverjum Evrópumeistaratitilinn
Eftir að leikmenn höfðu fengið gullpeningana var komið að því að lyfta evrópumeistarabikarnum sjálfum á loft. Var fyrirliði Spánar kallaður fram, Juan Carlos Navarro, en hann eftirlét það félaga sínum í spænska liðinu Felipe Reyes. Tók hann við bikarnum úr höndum Ólafs og bikarinn fór á loft við mikinn fögnuð troðfullrar íþróttahallarinnar í Kaunas.
- Leikir dagsins á NM - föstudagur 18. maí
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
Senda frétt
Prenta
Deila