Í fréttatilkynningu sem körfuknattleiksdeild Þórs hefur sent út kemur fram að deildin muni ekki senda meistaraflokk kvenna til keppni í vetur. Meistaraflokkur kvenna mun halda áfram æfingum undir stjórn nýráðins þjálfara Nebosja Vidic. Þá skal á bent að í vetur verður lið í stúlknaflokki skráð til keppni sem ekki hefur verið í nokkurn tíma.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
16 08 2011 | 14:04
Þór sendir ekki kvennalið til keppni í vetur
Fréttatilkynning körfuknattleiksdeildar Þórs
Körfuknattleiksdeild Þórs á Akureyri hefur tekið þá ákvörðun að senda ekki lið til keppni í 1. deild kvenna á komandi keppnistímabili. Málið hefur verið til athugunar í allt sumar og eftir miklar umræður varð það niðurstaðan að tefla ekki fram liði í vetur. Helstu ástæður þessarar ákvörðunar eru þær að liðið hefur misst fjölda leikmanna á meistaraflokksaldri undanfarin 2 ár og hefði æfinga- og keppnishópur liðsins að mestu samanstaðið af mjög ungum stelpum sem enn eiga eftir einhver ár í yngri flokkum.
Undanfarin tvö ár hefur orðið aukning í fjölda stúlkna hjá yngri flokkum félagsins og er það von körfuknattleiksdeildar að innan tíðar verði hægt að byggja meistaraflokkslið á sterkum kjarna uppalinna leikmanna.
Meistaraflokkur kvenna mun halda áfram æfingum undir stjórn nýráðins þjálfara Nebosja Vidic. Ákvörðunin verður endurskoðuð að ári og stefnt að því að tefla fram meistaraflokki kvenna á nýjan leik ekki seinna en haustið 2013.
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Þórs
- Leikir dagsins á NM - föstudagur 18. maí
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
Senda frétt
Prenta
Deila