NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
Meistaraflokkur kvenna endurvakinn hjá Breiðablik
27 05 2011 | 19:41

Meistaraflokkur kvenna endurvakinn hjá Breiðablik

Breiðablik hefur endurvakið meistaraflokk kvenna innan félagsins og mun á næsta tímabili senda lið til keppni á ný eftir þriggja ára hlé. Liðið er byggt á ungum og efnilegum stúlkum sem eru að koma upp úr yngriflokkastarfi félagsins og hafa verið í frestu röð í sínum árgangi upp alla yngriflokka.
Andri Þór Kristinsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks en hann er mjög reyndur þjálfari sem stýrði m.a. kvennalið Hamars á árunum 2003-2007 þar sem hann tók við ungu liði í neðri deild og leidd það upp og stýrði í úrvalsdeild. Andri kemur inn í metnaðarfullt þjálfarateymi félagsins og mun meðal annars njóta fulltingis Guðmundar Daða Kristjánssonar sem sér um styrktar og snerpuþjálfun meistaraflokka félagsins.
 
Mikill metnaður er innan félagsins í uppbyggingarstarfi kvennakörfunar og félagið er staðráðið í að koma Breiðabliki í fremstu röð á ný en 16 ár eru síðan Blikar hömpuðu Íslandsmeistaratitli kvenna í körfuknattleik.
 
Af þessu tilefni undirrituðu 6 ungar og efnilega stúlkur leikmannasamninga við félagið og ljóst að framtíðin er björt í Kópavoginum.
 
Mynd: Kristrún Guðmundsdóttir, Jón Þórey Pétursdóttir Helena Mikaelsdóttir, Sóllilja Bjarnadóttir, Hafrún Haraldsdóttir og Aníta Rún Árnadóttir ásamt þjálfara sínum Andra Þór við undirritun leikmannasamninga.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia