NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
Snæfell bikarmeistari í unglingaflokki kvenna: Sögulegur sigur
26 02 2011 | 17:56

Snæfell bikarmeistari í unglingaflokki kvenna: Sögulegur sigur

 
Snæfell er bikarmeistari í unglingaflokki kvenna eftir sigur á Keflavík. Lokatölur í viðureign liðanna voru 54-64 Snæfell í vil þar sem Helga Hjördís Björgvinsdóttir var valin besti maður leiksins með 12 stig, 13 fráköst og 1 stolinn bolta. Sigur Hólmara er sögulegur fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn sem félagið verður bikarmeistari í kvennaflokki.
Hólmarar byrjuðu betur og komust í 7-10 svo Falur Harðarson bað um leikhlé fyrir Keflavíkinga. Þessi stutta pása hafði tilætluð áhrif enda gerðu Keflvíkingar fimm stig í röð eftir þrist frá Anítu Evu Viðarsdóttur. Það voru þó Hólmarar sem leiddu 17-19 að leikhlutanum loknum.
 
Annar leikhluti einkenndist af fínum varnarleik á báða bóga. Eva Rós Guðmundsdóttir kom af Keflavíkurbekknum og setti ískaldan þrist og minnkaði muninn í 22-23 en Hólmarar slitu sig aðeins frá á lokaspretti fyrri hálfleiks og leiddu 24-30 í hálfleik.
 
Hildur Björg Kjartansdóttir var með 6 stig og 7 fráköst hjá Snæfell í hálfleik en Aníta Eva Viðarsdóttir var með 6 stig í Keflavíkurliðinu.
 
Keflvíkingar komu grimmir úr hálfleiknum og gerðu sex fyrstu stigin í þriðja leikhluta, Snæfell svaraði að bragði með 5-0 áhlaupi og staðan 32-39 fyrir Snæfell á sveiflukenndum upphafsmínútum í síðari hálfleik.

Berglind Gunnarsdóttir í sókn, Soffía Rún Skúladóttir er til varnar. 

Berglind Gunnarsdóttir tók við sér í Snæfellsliðinu í þriðja leikhluta og var ógnandi, það smitaði út í hópinn og Hólmarar fengu nokkrar góðar hraðaupphlaupskörfur og komust í 34-46. Lovísa Falsdóttir, sem komst lítið í takt við leikinn í dag, fékk síðan sína fimmtu villu í liði Keflavíkur og varð frá að víkja.
 
Keflvíkingar náðu þrátt fyrir mótlætið að klóra aðeins í bakkanna en Hólmarar unnu leikhlutann 18-15 og staðan því 39-48 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Snæfell tók 26 sóknarfráköst í leiknum, það var m.a. einn af banabitum Keflavíkur og sama hvað Keflvíkingar reyndu í fjórða leikhluta þá var svæðisvörn Hólmara þeim um megn. Björninn var svo endanlega unninn þegar Sara Mjöll kom Snæfell í 51-62 með körfu í teignum þegar ein og hálf mínúta var til leiskloka, lokatölur urðu svo 54-64 Snæfell í vil og Hólmarar fögnuðu vel og innilega sínum fyrsta bikartitli í kvennaflokki.
 
Berglind Gunnarsdóttir var stigahæst hjá Hólmurum með 16 stig og 7 fráköst en maður leiksins var Helg Hjördís Björgvinsdóttir með 12 stig og 13 fráköst. Hildur Björg Kjartansdóttir gerði 13 stig og tók 10 fráköst og Björg Guðrún Einarsdóttir bætti við 6 stigum, 9 stoðsendingum og 8 fráköstum. Hjá Keflavík var Eva Rós Guðmundsdóttir með 13 stig og 6 fráköst og Ingunn Embla Kristínardóttir gerði 12 stig og tók 7 fráköst.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia