Tveir leikir fóru fram á Heimsmeistaramótinu í körfuknattleik í dag en þar mættust liðin sem leika um 5.-8. sætið á mótinu. Spánverjar lögðu Slóvena með 17 stiga mun og Argentína hafði betur gegn Rússum. Á morgun munu Slóvenar og Rússar því leika um 7. sætið en Spánn og Argentína mætast á sunnudag í slag um 5. sætið.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
10 09 2010 | 20:39
Spánn og Argentína leika um 5. sætið
Spánn 97-70 Slóvenía
Sem fyrr var Juan Carlos Navarro fyrirferðamikill í liði Spánar en í dag gerði hann 26 stig og gaf 7 stoðsendingar fyrir sína menn. Jaka Lakovic var stigahæstur hjá Slóvenum með 19 stig og 4 stoðsendingar.
Argentína 73-61 Rússland
Luis Scola smellti niður 27 stigum fyrir Argentínumenn en í liði Rússa var Sergey Monya með 17 stig.
Ljósmynd/ www.fiba.com – Juan Carlos Navarro og félagar í spænska liðinu munu leika gegn Argentínumönnum um 5. sætið á sunnudag.
- Leikir dagsins á NM - föstudagur 18. maí
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
Senda frétt
Prenta
Deila