Kvennalið Keflavíkur hefur gert samning við Jacquline Adamshick fyrrum leikmann Villanova háskólans um að leika með liðinu næsta tímabil í Iceland Express deild kvenna. Jacquline er 183 cm á hæð og mun koma til með að spila framherja hjá liði Keflavíkur.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
09 09 2010 | 10:00
Jacqueline til Keflavíkur
Jacquline er 26 ára og kemur eins og fyrr segir frá Villanova háskólanum og skoraði þar 13 stig og tók um 6 fráköst á leik. Hún spilaði með liði Keltern í þýskalandi á síðustu leiktíð og þar áður með liði Oberhausen í þýsku efstu deildinni. Þar var hún að setja um 10 stig og hirða 6 fráköst. Keflvíkingar vinna nú hörðum höndum á að útvega henni atvinnuleyfi en segja að allt ætti að vera komið í höfn fyrir mótið.
Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflavíkur sagðist vera spenntur fyrir komandi tímabili. ,,Við ákváðum að fá leikmann í stærri kantinum eftir umhugsun. Þessi stúlka á vonandi eftir að hjálpa okkur í vetur. Við hlökkum bara til," sagði Jón en hann fer með lið sitt á æfingamót í Danmörku núna á næstu dögum.
Ljósmynd/ Jacqueline er nýjasti liðsmaður Keflvíkinga.
skuli@karfan.is
- Keflavíkurvörnin sendi KR stigalausar á Reykjanesbrautina
- Haukar upp í þriðja sætið eftir sigur á Hamri
- Úrslit kvöldsins: Keflavík jók forystuna á toppnum
- Öruggur sigur Vals á Njarðvík
- Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur
- Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
- Leikbrot.is: Suljic með svakaleg tilþrif í Toyota-höllinni
- Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld
- Oklahoma marði Golden State á útivelli - Leiktíðin búin hjá Billups
- Solna og Sundsvall með sigra - Jakob heitur gegn ecoÖrebro
Senda frétt
Prenta
Deila