Fyrsta dómaranámskeið vetrarins verður haldið föstudaginn 3. september og laugardaginn 4. september. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða. Bóklega kennslan verður kennd í íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
30 08 2010 | 11:42
Dómaranámskeið 3.-4. september
Á föstudeginum og á laugardagsmorgninum verður bókleg kennsla en bóklega og verklega prófið verður eftir hádegi á laugardegi. Námskeiðið verður á höfuðborgarsvæðinu.
Föstudagur:
18.00-22.00 bóklegt
Laugardagur
9.00-13.00 bóklegt og bóklegt próf
14.30-16.00 verklegt próf
Vakin er athygli á því að dómaramenntun er hluti af fræðsluáætlun KKÍ sem er komin til framkvæmda. Dómaranámskeið er hluti af fyrsta þrepi fræðslustigans.
Konur eru hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.
Síðasti skráningardagur er 2. september. Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.
Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, heimilisfang, kennitölu, síma, e-mail og félag.
Frétt af www.kki.is
Ljósmynd/ JBÓ: Það er margt athyglisvert í körfuboltanum sem dómarar þurfa að kljást við, hér er meðal annars verið að nota upptökutæknina til þess að skera úr um lögmæti körfu sem skoruð var er leiktíminn rann út.
Ljósmynd/ JBÓ: Það er margt athyglisvert í körfuboltanum sem dómarar þurfa að kljást við, hér er meðal annars verið að nota upptökutæknina til þess að skera úr um lögmæti körfu sem skoruð var er leiktíminn rann út.
- Keflavíkurvörnin sendi KR stigalausar á Reykjanesbrautina
- Haukar upp í þriðja sætið eftir sigur á Hamri
- Úrslit kvöldsins: Keflavík jók forystuna á toppnum
- Öruggur sigur Vals á Njarðvík
- Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur
- Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
- Leikbrot.is: Suljic með svakaleg tilþrif í Toyota-höllinni
- Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld
- Oklahoma marði Golden State á útivelli - Leiktíðin búin hjá Billups
- Solna og Sundsvall með sigra - Jakob heitur gegn ecoÖrebro
Senda frétt
Prenta
Deila