Í morgun lagði af stað hópur frá Íslandi áleiðis til Tyrklands. FIBA og tyrkneska körfuknattleikssambandið hafa efnt til æfingabúða fyrir efnilega krakka sem eru fædd á árinu 1996. Þessar æfingabúðir sem nefnast Children of the World eru í tengslum við HM í körfubolta sem hefst í endaðan ágúst. www.kki.is greinir frá.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
23 08 2010 | 14:33
Körfuboltakrakkar á leið til Tyrklands
Frá Íslandi fara þau Högni Fjalarsson úr KR og Bríet Hinriksdóttir úr Keflavík. Með þeim í för er Örvar Kristjánsson þjálfari en hann mun taka þátt í æfingabúðunum.
Þetta verkefni sem FIBA og tyrkneska sambandið hafa sett á laggirnar er afar metnaðarfullt en krakkar frá um 120 löndum mæta ásamt þjálfurum. Það er ljóst að þetta er einstakt tækifæri fyrir krakkana að fá að taka þátt í þessum æfingabúðum.
Ásamt því að æfa daglega við frábærar aðstæður fá krakkarnir tækifæri til að sjá nokkra leiki á heimsmeistaramótinu og fá þau m.a. að sjá bandaríska landsliðið spila.
Örvar Kristjánsson þjálfari ræddi við www.kki.is um þetta ævintýri sem þau eru að fara út í. ,,Þetta er auðvitað alveg einstakt tækifæri fyrir okkur öll að verða vitni að þessum gríðarlega merkilega viðburði sem HM er. Auk þess eru þessar æfingabúðir spennandi og þarna getur maður borið saman bækur sínar við þjálfara og leikmenn frá yfir 100 löndum sem er ótrúlega spennandi. Þetta verður einfaldlega bara gríðrlega mikið ævintýri fyrir okkur og mikill heiður að fara þarna fyrir hönd Íslands.”
Ljósmynd/ F.v.: Högni, Örvar og BríetFrá Íslandi fara þau Högni Fjalarsson úr KR og Bríet Hinriksdóttir úr Keflavík. Með þeim í för er Örvar Kristjánsson þjálfari en hann mun taka þátt í æfingabúðunum.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila