Bakvörðurinn sterki Ellert Arnarson er kominn á Klakann að nýju eftir ársveru í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði nám við University of California Santa Barbara. Hrafn Kristjánsson nýráðinn þjálfari karlaliðs KR vonaðist til þess að Ellert yrði í Vesturbænum næsta tímabil en leikmaðurinn kannar víst möguleika sína í stöðunni samkvæmt Hrafni.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
16 08 2010 | 21:23
Ellert snýr heim: Ekki sjálfgefið að KR verði fyrir valinu
,,Ég er með tilbúinn 13 manna íslenskan hóp, að því gefnu að Ellert Arnarsson verði hjá okkur en hann er að hugsa sitt ráð. Það eru einhver lið búin að setja sig í samband við hann og eðlilegt að hann staldri við og taki stöðuna. Ég vona þó að hann taki slaginn með okkur, mjög öflugur liðsmaður,“ sagði Hrafn en Ellert var liðsmaður hjá KR sem varð Íslandsmeistari á þarsíðustu leiktíð þegar KR hampaði titlinum eftir sögulega rimmu gegn Grindavík.
Hvað málefni erlends leikmanns í raðir KR varðar sagði Hrafn það mál í skoðun og að KR-ingar væru ekki að flýta sér í þeim efnum heldur stæði til að einbeita sér að þeim hópi sem þegar væri fyrir í DHL-Höllinni.
Ljósmynd/ Ellert í leik með KR á þarsíðustu leiktíð.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila