Í dag fóru flókin skipti fram þegar fimm leikmenn fengu nýja vinnuveitendur. Það er þó ekkert óalgengt í NBA að svo margir leikmenn koma nálægt skiptum. En í þetta sinn voru alls fjögur lið sem áttu þátt.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
11 08 2010 | 22:21
Hinn efnilegi Collison kominn með nýtt lið
Trevor Ariza fór til New Orleans frá Houston.
Darren Collison fór til Indiana frá New Orleans.
James Posey fór til Indiana frá New Orleans.
Troy Murphy fór frá Indiana til New Jersey.
Courtney Lee fór frá New Jersey til Houston.
Fljótt á litið virðist Indiana koma best út úr þessum skiptum. Þeir fá einn efnilegasta leikstjórnanda deildarinnar í Darren Collison en liðið hefur hingað til skort leikstjórnanda. Þegar ljóst var að Chris Paul yrði áfram í New Orleans var bara tímaspursmál hvenær Collison yrði skipt.
emil@karfan.is
Mynd: Hinn ungi og efnilegi leikstjórnandi Darren Collison verður án efa leikmaður Indiana til margra ára.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila