Tilkoma þeirra félaga LeBron James og Chris Bosh til Miami hefur haft gríðarleg áhrif um allt svæðið. Og þeirra nýja félag Miami Heat finnur fyrir því að áhuginn á liðinu hefur farið upp úr öllu valdi. Til að mynda eru treyjur þeirra LeBron James, Dwayne Wade og Chris Bosh meðal þriggja af fimm söluhæstu treyjunum í NBA.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
23 07 2010 | 06:00
Peningarnir flæða í Miami – hefur þú smakkað LeBron hamborgara?
Viðskiptastjóri Miami Heat, Eric Woolworth, er einn þeirra fárra manna sem fer að sofa brosandi og vaknar brosandi. Það er það mikið að gera. ,,Ég get varla farið út að borða eða út í búð. Allir vilja tala við mig um liðið. Þetta er brjálað,” sagði Woolworth.
Sala á ársmiðum rauk upp úr öllu valdi þegar ljóst var að ofurþríeykið, LeBron, Wade og Bosh, myndi spila með Miami. Nú er kominn töluvert langur biðlisti eftir ársmiðum og til að komast á biðlistann þarf að borga 100 dollara.
Allur varningur tengdur Miami er í hæstu hæðum eins og sala á treyjum leikmanna liðsins. Það er ljóst að allir heimaleikir Miami verða uppseldir á næsta vetri og komandi vetrum og ætlar Miami að tryggja að sem flestir fái tækifæri til að sjá heimaleiki liðsins. Það verða ávallt 19.600 áhorfendur í höllinni og þau algengu gylliboð NBA-liðanna að því fleiri miða sem þú kaupir því betri kjör færðu. Verður ekki eins áberandi hjá Miami ens hjá flestum liðum.
Amerískur fótbolti hefur ávallt verið aðal íþróttin í Miami en með sigri Miami í NBA árið 2006 breyttist það aðeins en með tilkomu LeBron er ljóst að Miami er að breytast í körfuboltabæ.
Þau félagslegu og efnahagslegu áhrif sem koma þeirra félaga mun hafa innan sem utan vallar er gífurleg. Miðað við þann uppgang sem er orðin nú þegar telja margir spekingar að heildar fjárhagslegu áhrifin á suður Flórída eru talin nema um einum milljarði dala. Þarna er verið að reikna allt sem til telur vegna liðsins og leiki þess. Svo sem aukna veltu hjá Miami félaginu í aukinni sölu á varning, miðum og öllu tengdu félaginu. Sala eykst í kringum heimavöll félagsins á leikdögum hjá veitingastöðum og verslunum í hverfinu og þeim fjölmörgu íþróttabörum sem er í borginni ásamt fjölmörgu öðru. Í þessari tölu eru laun þeirra félaga sem verða 329 milljónir dollara á samningstímanum ekki meðtalin.
Það er ýmislegt sem menn gera til að vekja athygli á sér og fjölmargir eru farnir að nýta sér það að LeBron er kominn til Miami.
LeBron borgarinn:
Á hamborgarastaðnum OneBurger er hægt að fá The LeBron Burger. Í honum er úrvals Kobe nautakjöt, ostur, laukhringur og jalapeno.
LeBron meðferðin:
Á Newport Beachside hótelinu er hægt að LeBroyal meðferðina eða LeBroyal Treatment´fyrir litla 149 dollara. Hún felur í sex hluti í samræmi við nýja númerið hans LeBrons. Þú færð nudd, handsnyrtingu, æfingu undir leiðsögn þjálfara, ferð á jet-ski, gjafaösku og svo til að toppa allt kippu af bjór.
Það er ljóst að hvort sem Miami verður meistari eða ekki að það verður mikið fjör á Flórída.
Mynd: LeBron James nær að breyta öllu sem hann tengistí peningamaskínu. En nær hann að gera það sem raunverulega skiptir máli. Að vinna NBA-titil?
- Leikir kvöldsins: Fimmtándu umferð lýkur
- Jakob íþróttamaður ársins í Sundsvall
- Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés í góðum gír
- Karfan TV: Þeir þurfa að vera miklu meiri töffarar
- Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvík
- Fjölnissigur að Hlíðarenda - Arnþór við suðumark
- Karfan TV: Þeir gefast aldrei upp en við héldum þeim í hæfilegri fjarlægð
- Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu
- Karfan TV: Gerðum það sem þurfti til að vinna
- Snæfell klífur töfluna á siglingu
Senda frétt
Prenta
Deila