Páll Fannar Helgason leikur að öllum líkindum með Valsmönnum að Hlíðarenda í 1. deild karla á næsta tímabili að eigin sögn. Karfan.is náði í skottið á Páli sem er Íslands- og bikarmeistari með Snæfell en þangað fór hann frá KR fyrir síðasta tímabil og var þar áður hjá Valsmönnum, sínu uppeldisfélagi.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
07 07 2010 | 15:20
Fögur er hlíðin svo Páll heldur heim
Páll Fannar fékk góða sénsa í úrvalsdeildinni undir stjórn Inga Þórs Steinþórssonar í Snæfellsliðinu og gerði 2,6 stig að meðaltali í leik en Páll Fannar er mikil skytta og mun vafalítið nýtast Valsmönnum vel í baráttunni í 1. deild en þar á bæ hafa menn reynt að berja sig upp í úrvalsdeild hin síðustu ár.
Fleiri lið voru inni í myndinni hjá Páli sem sagði þó yfirgnæfandi líkur á því að Valur yrði fyrir valinu.
Ljósmynd/ Jón Björn Ólafsson – nonni@karfan.is - Páll Fannar í leik gegn KR í undanúrslitum IEX deildarinnar á síðasta tímabili.
- Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés í góðum gír
- Karfan TV: Þeir þurfa að vera miklu meiri töffarar
- Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvík
- Fjölnissigur að Hlíðarenda - Arnþór við suðumark
- Karfan TV: Þeir gefast aldrei upp en við héldum þeim í hæfilegri fjarlægð
- Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu
- Karfan TV: Gerðum það sem þurfti til að vinna
- Snæfell klífur töfluna á siglingu
- Úrslit kvöldsins: Öruggt hjá Grindavík, Þór og Snæfell
- Nettó-mótið 2012: Skráning hafin!
Senda frétt
Prenta
Deila