Sunnudaginn 11. júlí ætlar KFÍ að halda Streetball mót. Fyrirkomulag mótsins verður 3 á 3 og spilað upp í 11. Fjórir geta þó verið saman í liði en þá er alltaf einn varamaður sem hvílir í hverjum leik. Mótið er fyrir 15 ára og eldri og mega ekki vera fleiri en tveir meistaraflokksmenn saman í liði. Mótið hefst kl. 14. 30. Verðlaun verða fyrir sigurliðið. www.kfi.is greinir frá.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
05 07 2010 | 14:24
Streetballmót KFÍ
Þátttökugjald á mótinu er 1.000 kr. á mann og mun allur ágóði renna til viðhalds á útikörfuboltavellinum. Völlurinn hefur séð betri tíma eins og má sjá á meðfylgjandi myndum. Hann hefur verið vel nýttur í sumar en mikið hefur borið á óánægju vegna ástands hans. Það er því von okkar að sem flest lið taki þátt í mótinu og aðstoði okkur við að halda körfuboltavellinum í sem bestu ástandi.
- Keflavíkurvörnin sendi KR stigalausar á Reykjanesbrautina
- Haukar upp í þriðja sætið eftir sigur á Hamri
- Úrslit kvöldsins: Keflavík jók forystuna á toppnum
- Öruggur sigur Vals á Njarðvík
- Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur
- Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
- Leikbrot.is: Suljic með svakaleg tilþrif í Toyota-höllinni
- Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld
- Oklahoma marði Golden State á útivelli - Leiktíðin búin hjá Billups
- Solna og Sundsvall með sigra - Jakob heitur gegn ecoÖrebro
Senda frétt
Prenta
Deila