Miðherjin Kendrick Perkins verður fjarri góðu gamni þegar félagar hans í Boston Celtics mæta meisturum LA Lakers í oddaleik úrslita NBA á fimmtudagskvöld. Perkins tognaði á hné í fyrsta fjórðungi sjötta leiksins í nótt og hefur verið afskrifaður fyrir lokaleik tímabilsins.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
16 06 2010 | 21:33
Perkins afskrifaður fyrir oddaleikinn
Perkins er einn af bestu varnarmiðherjum deildarinnar og algjör lykilmaður í liði Boston og verður sannarlega skarð fyrir skildi í fjarveru hans.
Lakers hafa að vísu glímt við meiðslavandræði þar sem Andrew Bynum hefur verið varla hálfur maður frá því að hann meiddist fyrir nokkrum vikum, en hann hefur þó getað skilað um 20 mínútum í leik án þess þó að vera svipur hjá sjón miðað við það sem hann er fær um.
Boston misstu rimmuna úr höndum sér í gær með spilamennsku sem væri skjall að kalla meðalmennsku, og hefðu svo sannarlega getað nýtt sér krafta Perkins til að eiga við Bynum og Pau Gasol, sem geta nú í samvinnu við Lamar Odom, gert Kevin Garnett og Glen Davis erfitt um vik.
Hvernig sem fer er ljóst að það stefnir í sögulega viðureign. Eftir rimmu sem hefur verið álíka spennandi og meðal-leikur á HM í fótbolta er allt komið á suðupunkt og tvö nafntoguðustu lið í sögu deildarinnar munu enn einu sinni gera út um málin sín á milli í hreinum úrslitaleik NBA
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila