Nú er lokaundirbúningur hafinn fyrir hið árlega Golfmót Körfuboltamanna, en leikið verður í heimabæ Íslands- og Bikarmeistara Snæfells að þessu sinni á Víkurvelli í Hólminum. Mótið fer fram föstudaginn 18. júní, sama dag og FIBA, alþjóð körfuknattleikssambandið á afmæli, og því ekki ólíklegt öllum þátttakendum eigi eftir að vegna vel í mótinu. Ræst verður út af öllum teigum kl. 14:30.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
08 06 2010 | 13:33
Golfmót Körfuboltamanna 2010
Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru að sjálfsögðu einnig velkomnir.
Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Skráning og nánari upplýsingar er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 897-6279 eða á tölvupóstfangi: rikkihr@visir.is
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila