NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
Boston í úrslit NBA í 21. skiptið
29 05 2010 | 07:23

Boston í úrslit NBA í 21. skiptið

Boston Celtics eru komnir í úrslit NBA í annað skiptið á þremur árum eftir að hafa lagt Orlando Magic að velli í nótt, 96-84. Þeir unnu þar með fjórða leik sinn í rimmunni, en Magic höfðu unnið síðustu tvo.
 
Eftir þrjá auðvelda sigra í upphafi rimmunnar misstu Celtics tvo leiki þar sem Magic vöknuðu af Þyrnirósarsvefni, en það var of seint í rassinn gripið og Boston vann öruggan sigur í nótt.
 
Þeir grænu byrjuðu mun betur og náðu öruggu forskoti strax í öðrum leikhluta þar sem varamaðurinn Nate Robinson kom sterkur inn og skoraði 13 stig. Munurinn komst mest upp í 21 stig, en Magic minnkuðu muninn niður í 13 stig í hálfleik.
 
Celtics byrjuðu aftur mun betur í seinni hálfleik þar sem þeig gerðu 11 stig gegn 2 og leikurinn var í raun búinn. Boston var alltaf að minnsta kosti 14 stigum yfir allt þar til á lokamínútunni þegar varamenn þeirra voru dansandi sigurdans á hliðarlínunni.
 
Þetta er í 21. sinn sem Boston vinnur Austurdeildartitilinn og þeir freista þess að vinna sinn 18. titil, en gætu þurft að berjast enn einu sinni við erkifjendur sína LA Lakers, sem leiða úrslitaeinvígið í Vesturdeildinni.
 
Paul Pierce var stigahæstur Celtics í leiknum með 31 stig og 13 fráköst og Ray Allen var með 20.
 
Hjá Magic var það bara Dwight Howard sem stóð fyrir sínu og skoraði 28 stig og tók 12 fráköst

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia