NÝJUSTU ÚRSLIT...

Ezell reyndi fyrir sér hjá WNBA liðum
28 05 2010 | 14:53

Ezell reyndi fyrir sér hjá WNBA liðum

 
Bandaríski leikmaðurinn Heather Ezell fór á kostum með Subwaybikarmeisturum Hauka á síðasta tímabili hér í Iceland Express deild kvenna. Karfan.is tók púlsinn á Ezell sem reyndi fyrir sér hjá nokkrum WNBA liðum fyrir tímabilið en hafði ekki erindi sem erfiði. Ezell var vafalítið einn besti leikmaður deildarinnar í vetur með 28,4 stig, 10,3 fráköst og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.
,,Síðan ég kvaddi Ísland reyndi ég fyrir mér hjá tveimur liðum í WNBA deildinni og síðasta tilraun var hjá Tulsa Shock. Því miður náði ég ekki inn á þessa leikmannalista en ég hef gert samning hér í Bandaríkjunum fyrir þetta sumar við lið sem heitir Savannah Georgia. Deildin er studd áfram af WUSBA (womens US basketball association),” sagði Heather en það er langt og strangt leikjaprógramm framundan hjá henni í sumar þó henni hafi ekki tekist að næla sér í sæti í WNBA deildinni.
 
,,Ég mun leika einhverja 30 leiki í sumar en tímabilið stendur frá júní fram í ágúst. Hvað næsta haust varðar hef ég ekki ákveðið hvað ég mun gera. Ég hef rætt töluvert við Henning (Henningsson þjálfara Haukakvenna) en ætla að bíða aðeins og sjá hvað verður í stöðunni síðar meir áður en ég tek ákvörðun um framhaldið,” sagði Heather sem setti svo sannarlega svip sinn á deildina á síðasta tímabili með hverri risaframmistöðunni á fætur annarri.

Ljósmynd/ stebbi@karfan.is- Ezell með Haukum í leik gegn Njarðvík á síðasta tímabili.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia