Bakvörðurinn Magnús Þór Gunnarsson hefur verið fjarri góðu gamni í liði Njarðvíkur í síðustu tveimur leikjum liðsins sökum meiðsla. Óttast var að Magnús hefði slitið liðband en Magnús fór í speglun í dag þar sem annað kom á daginn.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
19 03 2010 | 16:49
Magnús Þór kemur inn í leik tvö
Samkvæmt spegluninni var liðband Magnúsar í lagi og sagðist hann í samtali við Karfan.is eiga von á því að koma inn í leik tvö í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þegar Njarðvík tekur á móti Stjörnunni í 8-liða úrslitum. Magnús verður því ekki með í fyrsta leik liðanna þegar þau mætast í Garðabæ í næstu viku.
Magnús er með 17,4 stig að meðaltali í leik hjá Njarðvíkingum sem og 4,4 fráköst og 3,8 stoðsendingar.
- Hörður Axel í ítarlegu viðtali hjá Víkurfréttum
- Solna og Sundsvall með sigra í gærkvöldi
- Miami skellti Sixers
- Gengur betur næst
- Karfan TV: Besta myndbandið
- Úrslit: KFÍ vann eftir framlengingu á Akureyri
- Íslendingaliðin öll á ferðinni í kvöld – Sundsvall í beinni
- Karfan TV: Svipmyndir úr leik ÍR og Grindavíkur
- Þór-KFÍ í beinni á netinu
- Rose fór mikinn gegn Knicks í stóra eplinu
Senda frétt
Prenta
Deila