Síðasta umferðin í Iceland Express deild karla fer fram í kvöld og hefjast allir sex leikirnir á slaginu 19:15. Allir verða þeir í beinni tölfræðilýsingu hjá KKÍ og þrír í beinni netútsendingu. Í kvöld ræðst það svo hvort KR eða Grindavík verði deildarmeistari. KR leikur í Hólminum og Grindavík í Seljaskóla.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
18 03 2010 | 10:57
Leikir kvöldsins: Komið að úrslitastund
Leikir kvöldsins í IEX deild karla:
Snæfell-KR
ÍR-Grindavík
Fjölnir-Tindastóll
Keflavík-Hamar
FSu-Njarðvík
Stjarnan-Breiðablik
Viðureign Snæfells og KR verður í beinni netúsendingu hjá www.sporttv.is en takist KR að knýja fram sigur verða þeir deildarmeistarar. Leikur ÍR og Grindavíkur fer fram í Seljaskóla og verður í beinni netútsendingu á www.umfg.is og takist Grindavík að vinna leikinn og KR tapar í Hólminum verður Grindavík deildarmeistari. Þá verður viðureign Fjölnis og Tindastóls í beinni netútsendingu hjá www.fjolnir.is og bæði lið á höttunum eftir sigri þar sem úrslitakeppnin er að veði.
Rúnar Birgir Gíslason fréttastjóri Karfan.is tíundaði möguleikana á lokastöðu deildarinnar í grein á síðunni fyrr í þessari viku og hana má nálgast hér.
Hannes S. Jónsson formaður KKÍ skýrði frá því í samtali við Karfan.is hvernig sambandið leysti vandann um möguleikann á verðlaunaafhendingum á tveimur stöðum, þ.e. í Stykkishólmi eða í Seljaskóla – sjá hér.
Fyrir umferðina er vitað að FSu og Breiðablik eru fallin en andstæðingar þeirra í kvöld, Njarðvík og Stjarnan munu ekkert gefa eftir enda stigin tvö mikilvæg í lokaröðun deildarinnar.
Það er því í mörg horn að líta í kvöld og ætti enginn að vera svikinn af þeirri veislu sem er á boðstólunum.
- Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés í góðum gír
- Karfan TV: Þeir þurfa að vera miklu meiri töffarar
- Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvík
- Fjölnissigur að Hlíðarenda - Arnþór við suðumark
- Karfan TV: Þeir gefast aldrei upp en við héldum þeim í hæfilegri fjarlægð
- Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu
- Karfan TV: Gerðum það sem þurfti til að vinna
- Snæfell klífur töfluna á siglingu
- Úrslit kvöldsins: Öruggt hjá Grindavík, Þór og Snæfell
- Nettó-mótið 2012: Skráning hafin!
Senda frétt
Prenta
Deila