Í kvöld lýkur 21. umferð í Iceland Express deild karla með þremur leikjum sem allir hefjast kl. 19:15. Toppslagur kvöldsins er viðureign KR og Keflavíkur en með sigri tryggir KR sér deildarmeistaratitilinn. Hafi Keflavík sigur og líka Grindavík ræðst það ekki fyrr en á fimmtudag hverjir verði deildarmeistarar.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
15 03 2010 | 06:00
Leikir dagsins: Stórleikur í Vesturbænum
Leikir kvöldsins:
KR-Keflavík
Grindavík-FSu
Tindastóll-ÍR
Síðast þegar KR og Keflavík mættust hafði KR 15 stiga sigur í Toyota-höllinni í Keflavík, 85-100. Ef Keflvíkingar ætla sér að eignast innbyrðisviðureignina á KR verða þeir að vinna í kvöld með 16 stigum eða meira. KR hafði frækinn eins stigs sigur á Stjörnunni í síðustu umferð og Keflvíkingar völtuðu yfir granna sína í Njarðvík. KR er með 34 stig á toppi deildarinnar en þar á eftir kom Keflavík og Grindavík með 30 stig nú þegar 4 stig eru eftir í pottinum. Til þess að Grindavík eða Keflavík verði deildarmeistari þarf KR að tapa restinni, gegn Keflavík í kvöld og á fimmtudag gegn Snæfell á útivelli.
Grindavík fær FSu í heimsókn í Röstina og þykja nokkuð sterkari aðilinn í þessari viðureign eftir að Selfyssingar sendu Williams heim á dögunum. Grindavík berst um deildarmeistaratitilinn og gefa því engin grið í kvöld sem önnur kvöld en FSu mun leika í 1. deild á næstu leiktíð.
Á Sauðárkróki er von á miklum slag þegar Tindastóll tekur á móti ÍR en ÍR-ingar unnu eftirminnilegan sigur á Fjölni í síðustu umferð þar sem flautukarfa frá Robert Jarvis gerði útslagið. Þar sem Fjölnir vann Breiðablik í gær þurfa Stólarnir og ÍR ekkert að spá lengur í fall í 1. deild heldur berjast liðin nú um sæti í úrslitakeppninni. ÍR er í 7. sæti með 14 stig en Tindastóll hefur jafn mörg stig í 9. sæti og sigur því nauðsynlegur hjá báðum liðum.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila