Í dag hefjast undanúrslitin í Iceland Express deild kvenna með viðureign Hamars og Keflavíkur en leikur liðanna fer fram í Hveragerði og hefst kl. 15:00. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram í úrslit. Í hinni viðureigninni eigast svo við Deildarmeistarar KR og Íslands- og bikarmeistarar Hauka en fyrsti leikur liðanna fer fram annað kvöld og á KR heimaleikjaréttinn í seríunni.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
13 03 2010 | 12:03
Undanúrslitin hefjast í dag
Eins og undanfarin ár þá verða ýmsar uppákomur á leikjunum í úrslitakeppnum Iceland Express-deildana. Byrjað verður á Borgarskotinu og fleiri uppákomur bætast svo við þegar líður á úrslitakeppnina. Borgarskotið verður í öllum leikjum í úrslitakeppninni. Tveir áhorfendur fá að reyna sig á milli 1. og 2. leikhluta og aðrir tveir á milli 3. og 4. leikhluta. Alls fá sem sagt fjórir að spreyta sig í hverjum leik. Þeir sem hitta fá ferð með Iceland Express fyrir tvo á einhvern af áfangastöðum þeirra.
Á fimmtudag stóð KKÍ að kynningarfundi fyrir undanúrslitin í Iceland Express deild kvenna þar sem Karfan.is ræddi við fulltrúa liðanna. Hér má nálgast viðtölin:
Leikjaplanið hjá liðunum:
KR-Haukar
Leikur 1 Sunnudagur 14. mars kl. 19.15 KR-Haukar DHL-höllin
Leikur 2 Miðvikudagur 17. mars kl. 19.15 Haukar-KR Ásvellir
Leikur 3 Föstudagur 19. mars kl. 19.15 KR-Haukar DHL-höllin
Leikur 4 Sunnudagur 21. mars kl. 19.15 Haukar-KR Ásvellir ef þarf
Leikur 5 Þriðjudagur 23. mars kl. 19.15 KR-Haukar DHL-höllin ef þarf
Hamar-Keflavík
Leikur 1 Laugardagur 13. mars kl. 15.00 Hamar-Keflavík Hveragerði
Leikur 2 Þriðjudagur 16. mars kl. 19.15 Keflavík-Hamar Toyota-höllin
Leikur 3 Föstudagur 19. mars kl. 19.15 Hamar-Keflavík Hveragerði
Leikur 4 Sunnudagur 21. mars kl. 19.15 Keflavík-Hamar Toyota-höllin ef þarf
Leikur 5 Þriðjudagur 23. mars kl. 19.15 Hamar-Keflavík Toyota-höllin ef þarf
- Solna og Sundsvall með sigra í gærkvöldi
- Miami skellti Sixers
- Gengur betur næst
- Karfan TV: Besta myndbandið
- Úrslit: KFÍ vann eftir framlengingu á Akureyri
- Íslendingaliðin öll á ferðinni í kvöld – Sundsvall í beinni
- Karfan TV: Svipmyndir úr leik ÍR og Grindavíkur
- Þór-KFÍ í beinni á netinu
- Rose fór mikinn gegn Knicks í stóra eplinu
- Karfan TV: Finnur Atli í ÍR ??
Senda frétt
Prenta
Deila