NÝJUSTU ÚRSLIT...

Tvö mikilvæg stig í súginn hjá Sundsvall
13 03 2010 | 13:12

Tvö mikilvæg stig í súginn hjá Sundsvall

Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þar sem Jakob Örn og liðsfélagar í Sundsvall Dragons töpuðu tveimur mikilvægum stigum í toppbaráttu deildarinnar. Sundsvall tók á móti Södertalje á heimavelli sínum og mátti þola 79-89 ósigur.
Jakob Örn gerði 9 stig í leiknum og var með einn stolinn bolta á þeim 32 mínútum sem hann lék í leiknum. Eftir tapið í gær er Sundsvall sem fyrr í 3. sæti deildarinnar með 56 stig en hafa nú misst Plannja fjórum stigum fram úr sér með 60 stig þegar fjögur stig eru eftir í pottinum. Síðasti leikur Sundsvall í deildarkeppninni verður svo gegn Solna Vikings en þá mætast þeir félagar úr Vesturbænum Helgi Magnússon og Jakob Örn.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia