Ekkert lát er á velgengni Dallas Mavericks sem unnu í nótt sinn þrettánda sigur í röð þegar þeir lögðu botnlið NJ Nets, 96-87. Allt hefur gengið Texasbúunum í hag frá því að þeir fengu Caron Butler og Brendan Haywood til liðs við sig í skiptaglugganum og nú eru þeir farnir að anda ofan í hálsmál meistara LA Lakers á toppi Vesturdeildarinnar.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
11 03 2010 | 09:05
Þrettándi sigur Dallas í röð - Stórt tap Celtics á heimavelli
Þá eru Utah Jazz einnig í mikilli uppsveiflu og unnu í nótt sinn tíunda sigur í röð, nú gegn Detroit Pistons, 104-115.
Annars áttu flest stærri liðin góðu gengi að fagna í nótt fyrir utan Boston Celtics sem lutu í parketið fyrir Memphis Grizzlies, 91-111. Þetta er einn versti sigur þeirra á heimavelli í langan tíma, en þeir hafa nú tapað tveimur leikjum í röð og fimm af síðustu tíu. Þeir eru níu leikjum á eftir Cleveland Cavaliers í toppsæti Austurdeildarinnar og fimm á eftir Orlando Magic sem eru í öðru sæti.
Úrslit næturinnar/Tölfræði og video
Philadelphia 87 Charlotte 102
Miami 108 LA Clippers 97
Detroit 104 Utah 115
Boston 91 Memphis 111
Minnesota 102 Denver 110
Oklahoma City 98 New Orleans 83
Dallas 96 New Jersey 87
San Antonio 97 New York 87
Sacramento 113 Toronto 90
- Leikir kvöldsins: Fimmtándu umferð lýkur
- Jakob íþróttamaður ársins í Sundsvall
- Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés í góðum gír
- Karfan TV: Þeir þurfa að vera miklu meiri töffarar
- Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvík
- Fjölnissigur að Hlíðarenda - Arnþór við suðumark
- Karfan TV: Þeir gefast aldrei upp en við héldum þeim í hæfilegri fjarlægð
- Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu
- Karfan TV: Gerðum það sem þurfti til að vinna
- Snæfell klífur töfluna á siglingu
Senda frétt
Prenta
Deila