Metþáttaka er á Nettómótinu sem haldið verður í 20. sinn í Reykjanesbæ um helgina. Alls hafa um 1000 þátttakendur skráð sig til leiks eða 148 keppnislið frá 22 félögum og leiknir verða 360 leikir á 13 völlum.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
06 03 2010 | 06:00
Metþáttaka á Nettómótinu um helgina
Liðin sem boðað hafa þátttöku sína eru:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSu, Grindavík, Haukar, Hekla, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Reykdælir, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, Valur og Þór Akureyri.
Mótið fer fram í Heiðarskóla, Akurskóla, Íþróttahúsinu í Njarðvík, Íþróttahúsinu við Sunnubraut og Íþróttahúsinu á Ásbrú og kemur fjöldi sjálfboðaliða að skipulagningu þess sem er í höndum barna- og unglingaráðs köfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur.
Auk leikja er boðið upp á ýmis konar afþreyingu og má þar nefna pizzuveislu, bíó, sund, kvöldvöku, stanslaust fjör í Reykjaneshöllinni og heimsókn til Skessunnar í hellinum auk kvöldvöku. Foreldar og keppendur gista í grunnskólum Reykjanesbæjar þar sem boðið verður upp á morgunmat, hádegismat og kvöldverð keppnisdagana.
Umgjörð mótsins er glæsileg en markmið þess er að börn og foreldrar haldi heim sælir og glaði rmeð góðar minningar.
Mótið hefst kl. 08:00 í dag með móttöku liða í Holtaskóla en kl. 09:00 hefjast fyrstu leikir á öllum völlum.
Sjá nánar á www.nettomot.blog.is
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila