Fjórir leikir voru á dagskrá í Iceland Express-deild karla í kvöld. KR-ingar unnu góðan sigur á liði Breiðabliks í DHL-höllinni 96-72 þar sem Brynjar Þór Björnsson skoraði 25 stig fyrir heimamenn og Jonathan Schmidt setti 23 stig fyrir Breiðablik.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
04 03 2010 | 21:18
Úrslit kvöldsins: Grindavík vann Keflavík
Hamar vann í Hveragerði þegar nýliðar Fjölnis mættu í heimsókn. Hvergerðingar höfðu sigur 87-81 Marvin Valdimarsson var með tvennu fyrir Hamar 25 stig og 10 fráköst. Hjá Fjölni skoruðu þeir Ægir Þór Steinarsson og Christopher Smith 22 stig.
Grindavík vann mikilvægan sigur á Keflavík í toppbaráttunni 76-72 en leikið var í Röstinni. Darrell Flake var með 29 stig fyrir Grindavík en Ómar Sævarsson sem var næst stigahæstur setti 12 stig en hann skoraði sigurkörfuna þegar hann kom Grindavík fjórum stigum yfir þegar naumt var til leiksloka. Gunnar Einarsson var með 20 stig fyrir Keflavík.
Tindastóll vann Snæfell 99-91 fyrir norðan en Karfan.is er ekki enn búinn að fá stigahæstu leikmennina.
Mynd: Úr leik KR og Breiðabliks í kvöld/emil@karfan.is
- Fannar: Þarf einhvern sem getur sagt mér að halda kjafti
- FKÍ skartar nýju kennitákni
- Diaw tekur við af Tony Parker
- Leikið í sumardeildinni
- Kapteinn Kirk tilbúinn að axla sitt hlutverk í nýju liði
- Chris Paul skipti um skoðun – ætlar að vera áfram í New Orleans
- Yao gæti lagt skóna á hilluna
- Hvað gerist í dag hjá Chris Paul?
- Atli Örn til liðs við Blika
- Peningarnir flæða í Miami – hefur þú smakkað LeBron hamborgara?
Senda frétt
Prenta
Deila