Helgi Már Magnússon og Jakob Örn Sigurðarson verða í eldlínunni með sínum félögum í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Jakob og félagar í Sundsvall mæta Boras á útivelli en Helgi og Solna taka á móti Södertalje í Solnahallen.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
02 03 2010 | 09:33
Jakob og Helgi í eldlínunni í kvöld
Jakob Örn fór mikinn í liði Sundsvall síðasta föstudag þegar liðið vann mikilvægan sigur á Plannja sem er í 2. sæti deildarinnar. Lokatölur voru 86-83 Sundsvall í vil þar sem Jakob gerði sigurkörfuna 7 sekúndum fyrir leikslok. Jakob gerði 25 stig í leiknum, gaf 3 stoðsendingar og var með 2 fráköst og með sigrinum náði Sundsvall, sem er í 3. sæti, að minnka bilið á milli sín og Plannja niður í 4 stig.
Solna er sem fyrr í 4. sæti deildarinnar og hafa 46 stig, 4 stigum á eftir Jakobi og Sundsvall.
- Hörður Axel í ítarlegu viðtali hjá Víkurfréttum
- Solna og Sundsvall með sigra í gærkvöldi
- Miami skellti Sixers
- Gengur betur næst
- Karfan TV: Besta myndbandið
- Úrslit: KFÍ vann eftir framlengingu á Akureyri
- Íslendingaliðin öll á ferðinni í kvöld – Sundsvall í beinni
- Karfan TV: Svipmyndir úr leik ÍR og Grindavíkur
- Þór-KFÍ í beinni á netinu
- Rose fór mikinn gegn Knicks í stóra eplinu
Senda frétt
Prenta
Deila