Eftir leik Tindastóls og Stjörnunnar 16. febrúar sl. í Iceland Express deild karla var flöskum og fleiru lauslegu kastað úr áhorfendastúku í áttina að öðrum dómara leiksins strax eftir að leik lauk. Dómararnir kærðu þennan verknað og tók aga- og úrskurðarnefnd KKÍ málið fyrir á fundi sínum í gær. Þetta kemur fram á www.tindastoll.is
NÝJUSTU ÚRSLIT...
24 02 2010 | 16:00
Stólarnir fá sekt og áminningu eftir flöskukast áhorfenda
Það þarf engum blöðum um það að fletta að verknaður sem þessi getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir félagið. Þyngstu refsingar geta verið heimaleikjabann, en sem betur fer var málið ekki litið það alvarlegum augum í þetta skiptið, því körfuknattleiksdeildin var dæmd til að greiða 20 þúsund króna sekt auk þess að vera áminnt.
Í rökstuðningi með dómnum segir m.a:
„Skv. 7. gr. reglugerðar um körfuknattleiksmót bera félög ábyrgð á því að framkvæmd heimaleikja þeirra fari fram á eðlilegan hátt. Í því felst m.a. að tryggja öryggi dómara sem og aðskilnað áhorfanda frá starfsmönnum leiksins. Þá verður einnig talið að félög verði að hafa lágmarks gæslu, m.a. til þess fæla áhorfendur frá því að veitast að dómurum, starfsmönnum eða öðrum áhorfendum. Eins og atvikum er háttað í máli þessu verður talið að hið kærða félag hafi ekki sinnt skyldum sínum. Að mati aga- og úrskurðarnefndar eiga ákvæði f. liðar 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðamál við í þessu máli. Telur nefndin því rétt að hið kærða lið hljóti áminningu. Einnig telur nefndin rétt að hið kærða félag greiði sekt að fjárhæð kr. 20.000 kr. til KKÍ, sbr. einnig k. lið 13. gr. sömu reglugerðar. Jafnframt krefst aga- og úrskurðarnefnd þess að hið kærða félag geri viðeigandi ráðstafanir til að tryggja betur öryggi dómara og annarra aðila sem koma að framkvæmd leikja.“
Á heimasíðu Tindastóls segir ennfremur;
Körfuknattleiksdeildin vill koma þeirri ósk á framfæri við áhorfendur að gæta þess að nokkuð svona lagað komi ekki fyrir aftur. Getur það hæglega kallað fram mun harðari dóm svo sem heimaleikjabann sem hefði bæði fjárhagslegar- og félagslegar afleiðingar fyrir körfuknattleiksdeildina.
Ljósmynd/ Úr umræddri viðureign Tindastóls og Stjörnunnar þar sem flöskukastið átti sér stað.
www.tindastoll.is
www.tindastoll.is
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila