Landsliðskonan María Ben Erlingsdóttir deildi vonbrigðum með fyrrum stöllum sínum úr Keflavík síðasta laugardag. Áður en María hélt til Bandaríkjanna til náms og körfuknattleiksiðkunar lék hún með Keflavík. Um helgina máttu Keflvíkingar þola tap í bikarúrslitum kvenna og sama dag mátti María einnig lúta í parket með háskólaliði sínu UTPA.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
22 02 2010 | 14:48
UTPA lá um helgina
UTPA mætti þá NJIT skólanum á útivelli og tapaði með fjórum stigum, 70-66. María var í byrjunarliðinu sem miðherji og skoraði 8 stig í leiknum á þeim 30 mínútum sem hún lék. María var einnig með þrjú fráköst. Hún setti niður 2 af 6 teigskotum sínum, 1 af 6 þriggja stiga skotum sínum og setti niður eina vítið sem hún tók í leiknum.
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila