Cleveland Cavaliers töpuðu í gærkvöldi sínum þriðja leik í röð, nú gegn Orlandu Magic, sem eru komnir fast á hæla Cavs á toppi Austurdeildarinnar. Þá töpuðu Boston Celtics fyrir Denver Nuggets og Utah Jazz áttu ótrúlegan endasprett þar sem þeir unnu upp 25 stiga mun og lögðu Portland Trail Blazers í framlengingu. Carlos Boozer átti þar stórleik þar sem hann skoraði 22 stig og tók 23 fráköst.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
22 02 2010 | 10:30
Þriðja tap Cavs í röð
Loks unnu hinir stórefnilegu drengir í Oklahoma City Thunder sinn níunda leik í röð þar sem Kevin Durant skoraði 32 stig, en nú hefur hann skorað 25 stig eða meira í 28 leikjum í röð, en það eru 23 ár síðan einhver gerði betur. Það var Michael Jordan sem afrekaði það tímabilið 1986-87 þegar hann var með rúm 37 stig að meðaltali í leik.
Úrslit næturinnar:
Úrslit næturinnar:
Tölfræði og video: http://www.nba.com/gameline/20100221/
Orlando 101 Cleveland 95
Denver 114 Boston 105
New Jersey 94 Memphis 104
Detroit 109 San Antonio 101
Minnesota 107 Oklahoma City 109
New Orleans 102 Houston 94
Phoenix 104 Sacramento 88
Golden State 108 Atlanta 104
Portland 89 Utah 93
- Keflavíkurvörnin sendi KR stigalausar á Reykjanesbrautina
- Haukar upp í þriðja sætið eftir sigur á Hamri
- Úrslit kvöldsins: Keflavík jók forystuna á toppnum
- Öruggur sigur Vals á Njarðvík
- Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur
- Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
- Leikbrot.is: Suljic með svakaleg tilþrif í Toyota-höllinni
- Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld
- Oklahoma marði Golden State á útivelli - Leiktíðin búin hjá Billups
- Solna og Sundsvall með sigra - Jakob heitur gegn ecoÖrebro
Senda frétt
Prenta
Deila