NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
T-Mac með stórleik fyrir Knicks
21 02 2010 | 11:05

T-Mac með stórleik fyrir Knicks

Tracy McGrady átti magnaða endurkomu á körfuboltavöllinn þegar hann skoraði 26 stig í nótt fyrir sitt nýja lið, NY Knicks, í fyrsta fulla leik sínum í ár. Því miður fyrir hann dugði það ekki til sigurs því hinn frábæri Kevin Durant skoraði sigurkörfuna fyrir Oklahoma Thunder í framlengingu. Þetta var áttundi sigur Thunder í röð og 27. leikurinn í röð sem Durant gerir 25 stig eða meira.
Annar nýr leikmaður Knicks, Eddie House átti líka stórleik og var með 24 stig.
Almennt hafa þeir leikmenn sem höfðu vistaskipti í skiptaglugganum aðlagast vel þar sem John Salmons var t.d. lykilmaðurinn í sigri Milwaukee á Charlotte Bobcats, en í liði Charlotte var Tyrus Thomas, fyrrum liðsfélagi Salmons hjá Chicago Bulls, sem hefur einnig fundið sig vel hjá nýja liðinu sínu.
 
Bulls hafa líka verið að leika vel og unnu stórsigur á Philadelphia í nótt þar sem nýju leikmenn þeirra, Flip Murray og Hakim Warrick voru að skila sínu.
 
Sá sem virðist vera að finna sig best er hins vegar Caron Butler hjá Dallas, sem skoraði 20 stig fyrir sitt nýja lið í sigri á Miami í nótt. Koma hans virðist lika hafa blásið auknum krafti í Jason Kidd sem var með 21 stig og 11 stoðsendingar í leiknum.
 
Kevin Martin lék sinn fysta leik fyrir Houston og var ekki að ná sér almennilega á strik, því að þrátt fyrir að hafa skorað 16 stig var hann að hitta afleitlega utan af velli. Þá bætti ekki úr skák að Houston galt afhroð gegn Indiana Pacers.
 
Úrslit næturinnar/Tölfræði og video:
Toronto 109 Washington 104
New York 118 Oklahoma City 121
Chicago 122 Philadelphia 90
Houston 115 Indiana 125
Milwaukee 93 Charlotte 88
Dallas 97 Miami 91
LA Clippers 99 Sacramento 89
 
Mynd/AP

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia