NÝJUSTU ÚRSLIT...

IE kk: FSu 73-99 Tindastóll | IE kk: Keflavík 82-69 Njarðvík | IE kk: Breiðablik 74-73 Hamar |
Kaman í stað Roy í Stjörnuleikinn
08 02 2010 | 22:25

Kaman í stað Roy í Stjörnuleikinn

Chris Kaman hjá LA Clippers hefur verið valinn til að leysa Brandon Roy, bakvörð Portland Trail Blazers af í Stjörnuliði Vesturstrandarinnar en Stjörnuleikurinn árlegi fer fram í Dallas um næstu helgi.
 
 
 Roy hefur glímt við þrálát meiðsli í læri síðustu vikur og afsakaði sig því frá þátttöku í leiknum, en hann hafði verið valinn sem varamaður í leikinn í þriðja skiptið í röð.
 
Kaman hefur átt frábært tímabil frá einstaklingssjónarmiði séð þar sem hann er með um 20 stig og 9 fráköst að meðaltali í leik, en hann er loks að ná að halda sér af meiðslalistanum eftir tvö erfið ár.