Fjórtándu umferð Iceland Express deildar karla lauk í gærkvöldi þar sem Íslandsmeistarar KR tylltu sér einir á toppinn eftir öruggan sigur á Tindastól. Njarðvíkingar lágu á heimavelli gegn Grindavík og urðu gulir og glaðir fyrstir til þess að vinna Njarðvík í Ljónagryfjunni þetta tímabilið. Þá bárust Selfyssingum heldur betur gleðitíðindi þegar FSu vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu með 100-104 útisigri á Breiðablik í Smáranum. Í kjölfarið hefur botnbaráttan ekki síður orðið spennandi en toppbaráttan.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
26 01 2010 | 14:16
Uppgjör fjórtándu umferðar í IEX deild karla
Úrslit umferðarinnar:
Stjarnan 87-93 Snæfell
Hamar 102-81 ÍR
Fjölnir 84-103 Keflavík
Breiðablik 100-104 FSu
KR 106-71 Tindastóll
Njarðvík 99-102 Grindavík
Hólmarar gerðu góða ferð í Garðabæ og lögðu Stjörnuna 87-93 þar sem Emil Þór Jóhannsson fór á kostum í liði Snæfells og skoraði dýrmæt stig á lokasprettinum. Byssan Sean Burton ætlaði að byrja leikinn með látum við þriggja stiga línuna en snöggkólnaði skyndilega og endaði með 4 af 14 í þriggja stiga skotum. Stjörnumenn telfdu fram Guðjóni Lárussyni en leikmaðurinn hefur verið að ná sér af langvarandi meiðslum. Adam var samt ekki lengi í Paradís því fyrir leikinn tognaði Birkir Guðlaugsson á ökkla og meiðslagrýlan því enn við lýði í Garðabæ.
Hamarsmenn skelltu ÍR 102-81 í Hveragerði þar sem Oddur Ólafsson dældi 20 stigum yfir ÍR-inga í fyrsta leikhluta! Eiríkur Öndunarson var kominn á nýjan leik í ÍR-búning og setti niður 17 stig en ÍR situr í 8. sæti deildarinnar og berst hart fyrir því að komast í úrslitakeppnina.
Fjölnir fékk skell gegn Keflavík en síðan Draelon Burns kom til Keflavíkur hafa þeir vart stigið feilspor. Gunnar Einarsson heldur líka áfram að sýna sér yngri og óreyndari leikmönnum hvað sé hægt að uppskera með eljusemi en kappinn er sennilegast í besta forminu af öllum leikmönnum deildarinnar og hefur verið magnaður upp á síðkastið.

Selfyssingar geta andað örlítið léttar þar sem fyrstu stigin eru komin í hús en menn hafa þó kastað því fram að með sigri sínum í Kópavogi hafi FSu nánast sent Blika í 1. deild. Ótímabær umræða enda hafa liðsmenn FSu sýnt á sér klærnar undanfarið og spennan í botnbaráttunni ekki síðri en í toppbaráttunni svo menn skulu ekki slá neinu föstu, ekki strax að minnsta kosti.
Stólarnir mættu einbeittum KR-ingum í DHL-Höllinni en helsta hlutverk Tindastóls í Vesturbænum var að láta KR líta vel út. Ekkert skal tekið frá Íslandsmeisturunum en gestir þeirra að norðan voru hreint ótrúlega lélegir. Andlausir og stefnulausir og makalaust að sterkir leikmenn á borð við Axel Kárason, Svavar Atla Birgisson, Friðrik Hreinsson, Helga Margeirsson og Helga Rafn Viggósson bjóði sjálfum sér og stuðningsmönnum sínum upp á svona körfubolta.
Þá töpuðu Njarðvíkingar öðrum Suðurnesjaslagnum í röð er þeir lágu á heimavelli gegn Grindavík. Páll Axel Vilbergsson funhitnaði í Njarðvík og þá var Ólafur Ólafsson sterkur á svellinu. Búast má við að Sigurður Ingimundarson sé að þjappa í eina ,,hárþurkumeðferð“ enda hafa Njarðvíkingar valdið töluverðum vonbrigðum síðan Nick Bradford gekk til liðs við hópinn. Þorleifur Ólafsson var fjarri góðu gamni í Grindavíkurliðinu í gær en gulir hafa glímt við töluverð meiðsli undanfarið. Sigurinn er því sérlega sætur fyrir Grindvíkinga, að leggja Njarðvík án eins af lykilmönnum sínum.
Stigahæstu leikmenn hjá hverju liði í 14. umferð:
Richard Williams – FSu – 38 stig
Páll Axel Vilbergsson – Grindavík – 32 stig
Marvin Valdimarsson – Hamar – 29 stig
Christopher Smith – Fjölnir – 27 stig
Gunnar Einarsson – Keflavík – 25 stig
Jonathan Schmidt – Breiðablik – 22 stig
Justin Shouse – Stjarnan – 22 stig
Sean Burton – Snæfell – 22 stig
Magnús Þór Gunnarsson – Njarðvík – 21 stig
Kenney Boyd – Tindastóll – 21 stig
Brynjar Þór Björnsson – KR – 19 stig
Hreggviður Magnússon – ÍR – 19 stig
Hæstu leikmenn í helstu tölfræðiþáttum:
Flest stig að meðaltali í leik: Justin Shouse, Stjarnan – 26,5
Flest fráköst að meðaltali í leik: Hlynur Bæringsson - Snæfell – 15,1
Flestar stoðsendingar að meðaltali í leik: Sean Burton – Snæfell – 7,8
Flestir stolnir boltar að meðaltali í leik: Semaj Inge – KR – 3,4
Flestir tapaðir boltar að meðaltali í leik: Andre Dabney – Hamar – 4,3
Hæsta framlag að meðaltali í leik: Hlynur Bæringsson – Snæfell – 35,1
Besta vítanýtingin að meðaltali í leik: Sean Burton – Snæfell - 91,7%
Besta 2ja stiga nýtingin að meðaltali í leik: Hlynur Bæringsson – Snæfell – 71,8%
Besta 3ja stiga nýtingin að meðaltali í leik: Gunnar Stefánsson – Keflavík – 48,5%
Staðan í deildinni:
KR 12/2 24
Njarðvík 11/3 22
Keflavík 11/3 22
Snæfell 10/4 20
Stjarnan 10/4 20
Grindavík 9/5 18
Hamar 6/8 12
ÍR 5/9 10
Tindastóll 4/10 8
Fjölnir 3/11 6
Breiðablik 2/12 4
FSu 1/13 2
- Jakob íþróttamaður ársins í Sundsvall
- Höttur skellti sér í fjórða sæti með sigri á Þór - Andrés í góðum gír
- Karfan TV: Þeir þurfa að vera miklu meiri töffarar
- Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvík
- Fjölnissigur að Hlíðarenda - Arnþór við suðumark
- Karfan TV: Þeir gefast aldrei upp en við héldum þeim í hæfilegri fjarlægð
- Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu
- Karfan TV: Gerðum það sem þurfti til að vinna
- Snæfell klífur töfluna á siglingu
- Úrslit kvöldsins: Öruggt hjá Grindavík, Þór og Snæfell
Senda frétt
Prenta
Deila