NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
TCU burstaði UNLV
24 01 2010 | 17:55

TCU burstaði UNLV

 
Helena Sverrisdóttir gerði 13 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í gær þegar TCU burstaði UNLV skólann 81-61 á heimavelli UNLV í bandarísku háskóladeildinni í körfubolta. Emily Carter var stigahæst í liði TCU með 19 stig.
TCU hefur því unnið 14 af 18 leikjum sínum í vetur og staða þeirra er 4-1 í Mountain West riðlinum.
 
Næsti leikur TCU er þann 27. janúar n.k. gegn Colorado State skólanum.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia