Helena Sverrisdóttir skoraði 22 stig í kvöld í 80-63 sigri TCU á San Diego State skólanum. Helena var stigahæst í TCU liðinu.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
16 01 2010 | 23:04
Helena með 22 stig í sigurleik
Hún hitti úr 6 af 13 tveggja stiga skotum, 2 af 4 þriggja, 8 af 9 vítum og þá tók hún 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Með stigum kvöldsins er Helena orðin 10. stigahæsti leikmaður skólans frá upphafi og á ekki langt eftir til að komast inn á topp 10 í sögu skólans.
Fyrir leikinn var TCU í 22. sæti á lista AP fréttastofunnar yfir háskólalið í Bandaríkjunum og hafa verði á uppleið.
Liðið fær nú viku frí en mætir þá Nevada háskóla.
runar@karfan.is
Mynd: TCU
Mynd: TCU
- Staðan á NM: Tvö lið búin að tryggja sér að minnsta kosti bronsleik
- U16 kvk Ísland 71-67 Danmörk: Tvíburarnir fóru mikinn gegn Dönum
- U16 ka Ísland-Finnland 90-98: Finnarnir sterkari á endasprettinum
- U18 kk Ísland 87-76 Svíþjóð: Hungrið til staðar í framlengingunni
- U18 kvk Ísland 56-89 Svíþjóð: Svíar of stór biti að þessu sinni
- U16 kvenna Ísland 62-29 Noregur: Fyrsti kvennasigurinn síðan 2009 á NM
- U16 kk Ísland 88-96 Noregur: Fráköstin fóru illa með okkur
- Hilmar tekur við formennsku í Garðabæ - Gunnar kveður eftir 10 ár í brúnni
- Emil, Haukur og Guðmundur semja við Hauka - Sævar hættur
- Leikir dagsins á NM
Senda frétt
Prenta
Deila