NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
17 03 2009 | 15:22

Ómar í banni í fyrsta leik á næstu leiktíð

15:23
{mosimage}

(Ómar Sævarsson í leiknum gegn UMFG í gær)

Aganefnd KKÍ tók fyrir tvö mál á fundi sínum í dag. Ómar Sævarsson, leikmaður ÍR í Iceland Express deild karla, fær einn leik í bann en honum var vikið af velli í gærkvöldi í leik ÍR og UMFG í úrslitakeppni Iceland Express-deild karla.

Bannið tekur gildi á hádegi á morgun miðvikudag, í úrslitakeppninni þá tekur aganefnd fyrir allar kærur um leið og þær berast. Ef leikmaður er dæmdur þá tekur bannið gildi á hádegi daginn eftir.

Högni Þorkelsson, leikmaður ÍR-b í 2. deild karla, er dæmdur í eins leiks bann vegna brottreksturs sem hann fékk í leik gegn KR-b. Bannið tekur gildi á hádegi á fimmtudag.

www.kki.is

Mynd: nonni@karfan.is 


Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia