NÝJUSTU ÚRSLIT...
Kobe klikkaði ekki í þetta skiptið - Enn ein sigurkarfan
10 03 2010 | 08:31
LA Lakers komust aftur á sigurbraut í nótt þegar Kobe Bryant bjargaði sínum mönnum enn eina ferðina. Þrátt fyrir að hafa klikkað á lokaskotinu gegn Orlando í fyrrakvöld var Kobe auðvitað með boltann í höndunum á síðustu andartökum leiksins og kom sínum mönnum í 109-107 gegn Toronto Raptors og kom þannig í veg fyrir að leikurinn færi í framlengingu.
Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
10 03 2010 | 06:30
Snæfell nýtti tækifærið vel nú þegar kvennalið félagsins lék í fyrsta sinn í úrslitakeppninni í úrvalsdeild kvenna. Snæfell mátti játa sig sigrað 2-0 eftir mikið og gott einvígi gegn Keflavík. Hið þaulreynda lið Keflavíkur mátti hafa sig allt við að slá út ungt og efnilegt lið Hólmara sem undir stjórn Inga Þórs Steinþórssonar kom nokkuð á óvart í einvíginu. Flestir höfðu spáð Keflavík öruggum sigri en annað kom á daginn.
Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
10 03 2010 | 06:00
Tveir leikir eru á dagskránni í kvöld í unglingaflokki karla. Báðir leikirnir fara fram á höfuðborgarsvæðinu og hefst fyrri viðureign kvöldsins kl. 19:40 með slag Fjölnis og Laugdæla í Dalhúsum í Grafarvogi.
Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
09 03 2010 | 21:44
Spennan er nú í hámarki og undanúrslitin framundan í Iceland Express deild kvenna. Eins og gefur að skilja hafa sum lið deildarinnar lokið keppni og eru komin í sumarfrí, mæta ekki aftur í búning fyrr en næsta september, biðin er því tæpir sjö mánuðir. Í byrjun febrúarmánaðar tók Karfan.is púlsinn á þjálfurunum í Iceland Express deild kvenna og þar stóð ekki á svörunum og rauði þráðurinn var að þeir vildu fleiri leiki í deildinni. Karfan.is tekur nú upp þráðinn við Hannes Sigurbjörn Jónsson, formann KKÍ en hann upplýsir að ekki þurfi að bíða eftir ársþingi KKÍ til að gera breytingar á keppnisfyrirkomulaginu.
Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
09 03 2010 | 20:40
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið tryggði sér góðan útisigur en Helgi Magnússon gerði 5 stig fyrir Solna sem tapaði á heimavelli.
Leikir í beinni
Myndasafn
Karfan TV
- Verður það enn einn stórsigur nágrannans ?
- FSu sendir kanann heim
- Landsliðsþjálfari frá Spáni til Ísafjarðar
- UTPA í 2. sæti eftir deilarkeppnina í Great West deildinni
- Kobe klikkaði ekki í þetta skiptið - Enn ein sigurkarfan
- Ingi Þór: Fengum framlag og baráttu frá öllum
- Leikir dagsins: Leikið í unglingaflokki
- Hægt að breyta keppnisfyrirkomulaginu fyrir næsta tímabil!
- Útisigur hjá Sundsvall en Solna lá heima
- Leikdagar í undanúrslitum kvenna
Könnun
Ertu sammála um að bæta við reglunni þar sem ekki er hægt að fá ruðning á svæði undir körfunni ?



